DS síður
Vinir
Cool síður

Twitter Updates
    follow me on Twitter
    Stig í leikjum:

    POKER
    Gunni 9
    Ernir 9
    Svenni 6
    Haukur B. 5
    Snorri 5
    Kriz 3
    Hawk 2
    Silli 2
    Gauti 1
    Gaui 0
    Þrándur 0

    BORÐFÓTBOLTI
    ÍSLANDSMEISTARI
    Svenni

    2009
    Haukur 1
    Svenni 1

    2008
    Svenni 12 - 6
    Haukur 8 - 11
    Ernir 0 - 3

    Gaui 6 (21-23)
    Haukur 6 (23-21)


    ICY-CUP
    Haukur 1-(cup3)
    Gauti 1-(cup2)
    Hjalti 1-(cup1)


    ONLINE POOL
    Gauti 2
    Haukur 5

    Site Feed

    laugardagur, nóvember 14, 2009
     
    MediaMonkey

    MediaMonkey Ég skipti um tónlistarspilara í vélinni fyrr á árinu eftir að hafa verið harður aðdáandi Windows Media Player. Nýi spilarinn þeirra Windows manna er bara svo mikil afturför og erfiður að navigate-a að ég fór í könnunarleiðangur og fann MediaMonkey.

    Hann er algjör snilld fyrir mann eins og mig sem er alltaf að pæla í tölfræði og er að breyta tags.

    Ég mundi þó líklega ekki mæla með þessum spilara fyrir notendur sem bara nota spilarann til að hlusta.

    Uppsetning og útliti er hægt að breyta að vild og ég held að þessi uppsetning sem ég er með núna sé alveg að gera sig eins og sjá má myndinni (smella á mynd til að stækka).

    Flokkar: ,



    miðvikudagur, nóvember 04, 2009
     
    Nýjar myndir og video

    Var að setja inn nýjar myndir hér: http://picasaweb.google.com/mattimadsen

    og ný video hér: http://www.youtube.com/user/hawkhalf

    Flokkar: , ,



    mánudagur, nóvember 02, 2009
     
    Til hamingju KRiZ

    w32 Liðið W32/KRiZ tók glæsilega endasprett í F1 leik DS og vann sér inn 14.000 krónur. Mitt lið Hawks var lengst af á toppnum en Kriz vissi greinilega hvenær átti að blása til sóknar. Til hamingju Kriz.

    Letistrumpar (liðið hans Svenna) eiga þó líka hrós skilið fyrir að hífa sig uppúr 13. sæti (næst neðsta) í það 3ja í einungis 6 mótum.

    Ég hlakka til að vinna á næsta ári

    Flokkar:



    laugardagur, október 31, 2009
     
    Bad Taste

    badtaste Fór í snilldar afmælisveislu til Ragga í gær. Þemað var Bad Taste. Ég vissi ekki fyrr en á seinustu stundu hverju ég ætlaði að klæðast. Fann gamlar buxur og hálf rifinn hlírabol, ásamt ullarsokkum og kúrekahatt. Þarna var kominn ágætis redneck búningu og heppnaðist hann það vel að ég hlaut þriðja sætið fyrir búninginn.

    Partýið var snilld eins og sjá má á myndum frá Ragga.

    Flokkar: ,



    föstudagur, október 30, 2009
     
    10 ára

    Ég man eins og það hafi verið í gær þegar ég fór út sem skiptinemi til DK í Danmark Designskole og kynntist þar Mette sem síðar varð til þess að ég flutti út til DK. Það eru 10 ár síðan. Þó að margt af þessu virðist hafa gerst fyrir löngu löngu síðan þá er margt enn svo ferskt og sterkt í minningunni að það virðist bara hafa verið fyrir nokkrum mánuðum.

    Eins og þetta myndaband. Man hvað ég elskaði það og það rifjar sko upp margar minningar :)

    Flokkar: ,



    föstudagur, október 23, 2009
     
    Leggja þetta bara niður

    Vill ríkisstjórnin ekki bara leggja niður Fæðingarorlofssjóð og “spara” þannig pening? Ég meina það mundi nú “spara” helling að þurfa ekki að borga út þessa peninga til nýbakaðra foreldra…

    Þetta mundi verða til þess að fólk mundi hætta að eignast börn sem verður til þess að færri börn verða í skóla sem einnig sparar, sem verður til þess að eftir 70-90 ár munu færri verða á elliheimilium. Svo eftir svona 100 ár þá er bara engin eftir á landinu og þá eru allar áhyggjur horfnar.

    Gott plan.

    Flokkar:



    sunnudagur, október 18, 2009
     
    Guð blessi Ísland

    Fór með pabba, Dagrúnu og mági á Guð blessi Ísland. Þessi mynd lýsir nokkuð vel ástandinu á Íslandi seinasta vetur og ég fékk gæsahúð oftar en einu sinni. Þessi mynd var þó dálítið langdregin og er í raun meira svona sjónvarpsmynd sem mætti alveg stytta um svona 30 mín. En mjög áhugaverð engu að síður maður upplifði í raun gremjuna og stemminguna á nýjan leik og maður varð svona pínu þungur eftirá, því þrátt fyrir allt sem gerðist, öll þessi mótmæli þá hefur í raun ekkert breyst.

    Flokkar:



    fimmtudagur, október 08, 2009
     
    Spilakvöld í gær

    Það mættu ekki margir á spilakvöld hjá Gauta í gær sem er gott því við spiluðum ansi gott tveggja manna spil sem ég man ekki hvað heitir. Það var þó mjög skemmtilegt og tókst mér að vinna nokkrum sinnum sem hlýtur að teljast gott þar sem ég var bara að læra spilið.

    Takk fyrir mjög fínt kvöld Gauti.

    Flokkar:



    sunnudagur, október 04, 2009
     
    Góð helgi að baki

    Nokkuð róleg fjölskylduhelgi að baki. Við fjölskyldan kíktum á fyrsta leik Bandýfélags Reykjavíkur í gær og fylgdust þar með hörkuspennandi leik. Mínir menn (og konur) áttu svo sannarlega skilið að vinna þennan leik en því miður náðist einungis jafntefli. Skruppum svo til mömmu og borðuðum með henni.  Sökum magaverkja eftir pilluát (sjá fyrri færslu) þá sleppti ég því að mæta í þrítugs-afmæli til KRiZ sem ég hefði þó alveg viljað kíkja á.

    Sunnudagurinn var einnig ljúfur. Fór með Matta á bókasafnið og svo fórum við fjölskyldan í afmælisboð heim til Ernis og fjölskyldu, en þau eiga einmitt hann Emil sem er ekki nema 10 dögum eldri en Lillian Líf.

    Hér eru einhverjar myndir frá helginni.

    Flokkar: ,



    laugardagur, október 03, 2009
     
    Hlaupabóla part II

    Ég er algjört frík. Ekki nóg að ég hafi þurft að láta taka úr mér 5 endajaxla að þá er ég núna með hlaupabólu í annað skipti. Reyndar heitir þetta víst ristill, en er sem sé sama veira og veldur hlaupabólu og hún fer víst aldrei úr líkamanum ef þú hefur fengið hana. Svona frík eins og ég fá svo að kenna á henni aftur.

    Það bjánalega er þó að ég hringdi í húðsjúkdómalækni þegar ég sá að þetta var nú ekki bara ein bóla (datt ekki í hug að fara til heimilislæknis því það er sko peningasóun). Nú mér var tjáð að ég gæti fengið tíma 20. okt. OK, ég þáði það en lét þó setja mig á biðlista. 15 mínútum síðar er hringt og sagt að það hafi losnað tími í hádeginu og ég sáttur tók þann tíma.

    Þegar læknirinn var búin að skoða mig og greina hvað þetta væri sagði hún að það hefði verið betra ef ég hefði komið fyrr    eeee… hvernig er hægt að koma fyrr ef ég átti ekki að fá tíma fyrr en 20. okt?

    Ég mæli með því ef þið hafið hugsað ykkur að fá einhvern húðsjúkdóm að panta tíma hjá lækni 3. vikum áður en þið fáið sjúkdóminn.

    PS. ég reyndi að panta tíma hjá Húð- og Kyn þar sem það er ókeypis, en sú sem svaraði í símann sá í gegnum það   og þó ég sagði svo við hana að “Hey, jú ég er eiginlega með eitthvað skrítið þarna niðri… má ég svo ekki bara láta lækninn kíkja líka á bakið í leiðinni?” þá fékk ég ekki að fá tíma.

    Flokkar:



    fimmtudagur, október 01, 2009
     
    Engin babe og ekkert afmælisbarn

    Þetta er Dauðaspaðinn að mótmæla því að ekki eru 26 tímar í sólahring. Vona að þetta verði allt tekið til endurskoðunar. Babe-ur og afmælisbörn verða aftur komin 2. okt.

    Flokkar:



    sunnudagur, september 27, 2009
     
    Blöndunartækjaævintýrið

    Um seinustu helgi þá keyptum við nýtt blöndunartæki fyrir sturtuna. Gamla var orðið það lúið að það gaf okkur bara volga sturtu enda erfitt að snúa til að breyta hitastiginu.

    Rúntuðum aðeins um og kíktum á úrvalið og verðið. Fundum mjög fínt tæki á 17.000 kall sem mér sýndist vera vel sloppið miðað við önnur. Þegar heim var komið þá skrúfaði ég það á rörin en það kom bara kalt vatn. Tækið bilað.

    Daginn eftir þá fór ég og skipti því og fékk nýtt. Skrúfaði það á og þar kom bæði kalt og heitt. En eftir smá stund tók ég eftir því að það kom heitt vatn úr baðvaskinum þegar ég skrúfaði frá kalda vatninu. Blöndunartækið nýja sem sé hleypti heitu vatni inní kalda rörið þó svo að það væri ekki í notkunn. Tækið bilað.

    Fór því enn aftur upp í Húsasmiðju þar sem engin var í pípulagnadeildinni til að aðstoða og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að tala við aðra starfsmenn þá vildi engin hjálpa mér, svo ég fór með tækið á upplýsingaborð og fékk það endurgreitt. Nennti sko ekki að versla frekar við fyrirtæki sem lætur kúnnan bíða í 30 mín eftir engu.

    Fór uppí Múrbúð og keypti mun einfaldara tæki á 7.000 kall. Skrúfaði það á og allt virtist virka, þangað til að það fór að leka frá haldinu sem blandar vatnið. Tækið bilað. Ég fór því enn einu sinni af stað með bilað tæki, uppí Múrbúð og ákvað að kaupa MJÖG einfalt tæki. 4.500 kall. Snýrð hægra megin til að fá heitt og vinstra megin til að fá kalt. Nema það þurfti millistykki til að ég gæti sett sturtuhausinn á það. Fór því í tvær aðrar búðir og fann það loks í Byko. Ákvað einnig að kaupa síu svo sandur mundi nú ekki skemma blöndunartækið. Millistykkið og sían kostaði jafn mikið og blöndunartækið, svo ég endaði með tæki + síur + millistykki á ca 9.000 kall.

    Þetta allavega virkar núna… 7,9,13

    Flokkar:



    þriðjudagur, september 22, 2009
     
    Konan er góð við mig þessa dagana

    SDC10512

    SDC10514

     

    Þetta eru tvær seinustu kvöldmáltíðir sem konan eldaði handa mér. Til hvers að fara út að borða ef ég fæ svona heima

    Flokkar:



     
    Danmörk í desember

    Þá er miðinn kominn í hús. Ferð út þann 2. desember og heimför 3. janúar. Það er komið rúmlega ár síðan við fórum til DK svo kominn tími til.

    Flokkar:



    sunnudagur, september 20, 2009
     
    Top 10 Sci-Fi og Fantasy babe-ur

    September21s Eins og ég sagði frá fyrir nokkrum vikum þá hlustar Dauðaspaðinn á sína lesendur… alla þrjá, og því munu næstu 10 daga birtast listi yfir mest sexý Sci-Fi og Fantasy babe-ur að mati Ragga. Já þetta er allt í boði Ragga og get ég sagt að þessi listi er nú alls ekki dónalegur… eða jú sko pínu dónalegur, en ekki dónalegur… æi þið skiljið.

    Kannski að ég skrifi eina og eina færslu líka á þessum 10 dögum svo þið getið nú eytt tímanum í að lesa það líka

    Annars ef þið eruð með hugmyndir fyrir beibur í næsta mánuði þá megið þið alveg koma með hugmyndir.

    Takk Raggi fyrir að gefa þér tíma að setja saman þennan líka sexý lista.

    Flokkar: ,



    laugardagur, september 19, 2009
     
    Hver vann Ölympics?

    tappi2009 Já nú er næstum komin vika síðan að ég ásamt liðinu SHAG mínus A plús G vann Ölympics. Þetta var snilldardagur í alla staði. Góð mæting, frábært skipulag, góðar greinar, ágætt veður, frábært húsnæði, mikið fyllerí og já það sem skiptir mestu máli að ég vann :)

    sigurlididÉg var í liði með Svenna, Gauja og Gunna. Ástæðan fyrir því að engin stelpa var í liðinu er vegna þess að Anna Lind sem upprunalega var í liðinu var ekki frísk. Nú Gunni kom því ótrúlega sterkur inn í annars vel skipulagt lið… samt minna skipulagðir en aðrir… allavega búningalega séð.

    Já ég skammast mín fyrir það að hafa ekki hvatt liðið mitt að vera í búning en ég var bara svo ótrúlega busy vikuna á undan að það sat á hakanum en ég hrósa ofurhetjunum fyrir þeirra búning. Hefðu alveg átt skilið fleiri stig fyrir búninginn.

    Nú ég man ekki mikið af því sem gerðist eftir kvöldmat og ég var kominn heim um 1 leitið.

    Nú er staðan þannig að ég stofnaði Ölympics, hef stjórnað því, hef tapað því og núna hef ég unnið það. Hvað er eftir :D

    Allavega þakka ég mótshöldurum Hjalta og Ragga fyrir frábært framtak og að hafa gefið mér tækifæri til að taka þátt og vinna. Ég mun borga til baka á næsta ári.

    Ég mun skella myndum af þessu á netið um helgina en á meðan getið þið kíkt á myndirnar hans Ragga.

    Flokkar:



    Bjór, stelpur, dauðaspil og annað áfengiDauðaspaðinn

    Er að hlusta á:

    Top 7 seinasta vika:

    Weblog Commenting by HaloScan.com

    Powered by Blogger